Tómata og klettasalat
Kirsuberjatómatarnir skornir í tvennt og konfekttómatarnir í fjórðunga eða þykkar sneiðar. Vorlaukurinn saxaður og settur í skál ásamt tómötum og klettasalati.
Olía, sítrónusafi, hlynsíróp, pipar og salt hrist eða hrært saman, hellt yfir salatið og blandað vel.
Ostarúllan klipin í bita og þeim blandað saman við.