Tómatabrauð með osti
Ofninn hitaður í 180°C.
Blómkál og spergilkál tekið sundur í stóra kvisti og stönglarnir skornir í sneiðar.
Hvítkálið skorið í ræmur eða bita.
Saltvatn hitað í stórum potti og kálið soðið í 5-8 mínútur, eða þar til það er tæplega meyrt – best er að setja kálstönglasneiðarnar í pottinn fyrst og láta þær sjóða ögn lengur en hitt. Á meðan er smjörið brætt í öðrum potti, hveitinu hrært saman við og síðan er mjólkinni hrært saman við smátt og smátt og sósan bökuð upp.
Kryddað með timjani, pipar og salti og látið malla í nokkrar mínútur. Vatninu hellt af kálinu og það sett í eldfast fat. Ostarúllan skorin í bita, sett út í sósuna og hrært þar til osturinn er bráðinn. Sósan á að vera þykk en ef hún er of þykk má þynna hana ögn með mjólk. Hellt jafnt yfir kálið.
Sett í ofninn og bakað í 25-30 mínútur, eða þar til gratínið er gullinbrúnt.