Eggjakaka með grænmeti
Grillið í ofninum hitað.
Olía og smjör hitað á stórri, þykkbotna pönnu. Sveppirnir og hvítkálið steikt í nokkrar mínútu við meðalhita ásamt timjani, pipar og salti. Þegar kálið er farið að mýkjast ögn er tómötunum bætt á pönnuna og þeir látnir krauma í 2-3 mínútur.
Egg, matreiðslurjómi eða mjólk og dálítið af pipar og salti hrært saman í skál og hellt yfir grænmetið á pönnunni. Hrært þar til blandan er byrjuð að stífna.
Klettasalati og ostarúllubitum hrært saman við og pönnunni stungið undir grillið (best að hafa hana 10-15 cm frá grillristinni) þar til yfirborðið er gullinbrúnt og osturinn bráðinn.